top of page
  • Facebook
  • Instagram
Search

Minna getur verið meira

Við leggjum oftast parket á heilar íbúðir en það kemur fyrir að við þurfum einungis að leggja á lítil svæði. Það getur oft verið erfiðara og flóknara heldur en íbúð. Ef fólk er til dæmis að laga eitthvað og þarf að láta leggja nýtt parket þá getur nýja efnið þurft að flæða við núliggjandi efni og þá getur tekið tíma að reikna út hvar skal byrja svo allt líti nú vel út. Það fer því oft meiri undirbúningstími í lítil verkefni. Margir halda að ef fermetrarnir eru færri þá er vinnan fljótari og auðveldari. Við lögðum síldarbeina parket á lítið herbergi með skúmaskotum og var mikil vinna í þessu verkefni, bæði vegna tegund parkets og fjölda veggja. Þarna þurfti því að skera mikið og tók verkið töluverðan tíma því það er erfiðara að viðhalda góðu flæði þegar það eru alltaf að koma horn og veggir sem stöðva flæðið.


 
 
 

1 Comment


Þetta er mjög áhugavert, hef ekki pælt í þessu

Like
bottom of page