Síldarbeinamynstur
Við sérhæfum okkur í lagningu á síldarbeinamynstruðu parketi sem veitir rýminu fágað og tímalaust yfirbragð. Fullkomið fyrir heimili eða fyrirtæki sem vilja sérstöðu
Það krefst mikillar færni að legga síldarbeinaparket og ekki fyrir hvern sem er. Góður undirbúningur leggur grunninn að fallegu og endirngargóðri lausn.


Síldarbein – klassískt mynstur með karakter
Síldarbeinamynstur hefur lengi verið vinsælt í gólfefnum og nýtur enn mikilla vinsælda. Mynstrið myndast þegar parketfjölum er raðað saman í ákveðna stefnu og úr verður einkennandi mynstur sem gefur gólfinu sérstakt yfirbragð.
Síldarbein getur hentað bæði nútímalegum og klassískum innréttingum. Útlitið ræðst meðal annars af viðartegund, lit, stærð parketfjalanna og því hvernig mynstrið er lagt.
Hefðbundið síldarbein eða franskt síldarbein?
Síldarbeinaparket er hægt að leggja í mismunandi mynstrum. Tvær vinsælar útfærslur eru hefðbundið síldarbein (herringbone) og franskt síldarbein (chevron).
Í hefðbundnu síldarbeinamynstri eru rétthyrndar parketfjalir lagðar hornrétt hver á aðra og mynda fallegt, víxlandi mynstur.
Í frönsku síldarbeini eru endar parketfjalanna skornir á ská þannig að þær mætast í beinni línu og mynda samfellda V-laga odda.
Báðar útfærslurnar gefa gólfum glæsilegt og tímalaust yfirbragð. Við tökum að okkur lögn á báðum mynstrum og leggjum áherslu á nákvæmni og vandaðan frágang.


Dæmi um franskt síldarbeinamynstur (chevron)

Síldarbein í viðarparketi, harðparketi og vinyl
Síldarbeinamynstur er ekki bundið við eina tegund gólfefnis. Við tökum að okkur lagningu á síldarbeinaparketi úr viði, harðparketi (laminat) og vinyl.
Viðarparket í síldarbeinamynstri er almennt límt við undirlagið og krefst vandaðs undirbúnings og nákvæmrar lagningar.
Síldarbein úr harðparketi og vinyl er einnig fáanlegt í útfærslum sem eru lagðar fljótandi með smellukerfi.
Við höfum reynslu af mismunandi lagningaraðferðum og leggjum áherslu á að fylgja kröfum framleiðanda og tryggja snyrtilegan frágang, óháð því hvaða gólfefni verður fyrir valinu.
Nákvæmni og undirbúningur skipta öllu máli
Við síldarbeinalögn skiptir miklu máli að mælingar og upphafspunktur séu rétt ákveðin. Jafnvel lítil frávik geta haft áhrif á hvernig mynstrið kemur út í rýminu.
Áður en lögn hefst metum við undirlagið og hvort þörf sé á undirbúningi, til dæmis flotun eða öðrum lagfæringum. Við leggjum áherslu á að mynstrið liggi rétt og að frágangur við veggi, hurðarop og aðra fleti sé snyrtilegur.


Hvað kostar að leggja síldarbeina parket
Verð fyrir
fljótandi vinyl/harðparket er 7.500 kr./m² + VSK
Límt viðarparket er 12.000–15.000 kr./m² + VSK.
Chevron er 16.000 kr./m² + VSK
Inn í þessu verði er lögn á undirlagi, parketi og listum.
Síldarbeinalögn er almennt tímafrekari en hefðbundin bein parketlögn vegna þess hversu mikillar nákvæmni mynstrið krefst.
Endanlegt verð fer meðal annars eftir stærð og lögun rýmisins, ástandi undirlagsins og því hvort þörf sé á frekari undirbúningi eða sérstökum frágangi.
Verðið miðast við vinnu við parketlögnina en ekki kaup á gólfefninu.
Fáðu tilboð í síldarbeinalögn
Ertu að hugsa um síldarbeinaparket fyrir heimilið eða fyrirtækið? Hafðu samband við okkur og fáðu frítt verðmat á framkvæmdinni.

