Harðparket
Harðparket (laminat) er vinsæll kostur fyrir heimili og fyrirtæki. Það er slitsterkt, auðvelt í umhirðu og fæst í fjölbreyttu útliti. Við sjáum um faglega lögn á harðparketi og leggjum áherslu á nákvæm vinnubrögð og fallegan frágang.


Harðparket – slitsterkt og fjölbreytt
Harðparket er gólfefni sem hentar vel í mörg rými þar sem óskað er eftir slitsterku og auðveldu gólfi í daglegri notkun. Það fæst í fjölbreyttum litum og mynstrum, meðal annars með áferð sem líkist náttúrulegum viði.
Ólíkt viðarparketi er harðparket ekki með yfirborð úr náttúrulegum viði. Það er því mikilvægt að velja gólfefni sem hentar bæði notkun rýmisins og þeim kröfum sem gerðar eru til þess.
Undirbúningur fyrir lögn á harðparketi
Góður undirbúningur skiptir miklu máli fyrir endingu og útlit gólfsins. Áður en lögn hefst skoðum við ástand undirlagsins og metum hvort þörf sé á lagfæringum eða flotun.
Undirlagið þarf að uppfylla kröfur framleiðanda um meðal annars sléttleika og raka. Einnig þarf að velja viðeigandi undirlagsefni eftir gerð harðparketsins og aðstæðum í rýminu.


Fagleg lögn og vandaður frágangur
Við leggjum áherslu á rétta samsetningu parketfjalanna, nauðsynleg þenslubil og nákvæman frágang við veggi, hurðarop og þröskulda.
Snyrtilegur frágangur skiptir ekki síður máli en lögnin sjálf. Við tökum að okkur frágang með gólflistum og öðrum lausnum eftir þörfum hvers verkefnis.
Við tökum einnig að okkur lögn á harðparketi í síldarbeinamynstri. Slíkt parket er fáanlegt með smellukerfi sem gerir kleift að leggja það fljótandi, án þess að líma það við undirlagið.
Hvað kostar að leggja harðparket
Verð fyrir hefðbundna fljótandi harðparketslögn er 5.000–5.500 kr./m² + VSK.
Inn í þessu verði er lögn á undirlagi, parketi og listum.
Endanlegt verð fer meðal annars eftir stærð og lögun rýmisins, ástandi undirlagsins og því hvort þörf sé á frekari undirbúningi eða sérstökum frágangi.
Verðið miðast við vinnu við parketlögnina en ekki kaup á gólfefninu.


Fáðu tilboð í lögn á harðparketi
Ertu að skipuleggja nýja harðparketslögn eða endurnýjun á gólfum? Hafðu samband við okkur og fáðu frítt verðmat á framkvæmdinni.
