top of page
  • Facebook
  • Instagram

Parketlögð þrep - falleg og endingargóð lausn fyrir stigann

May 14
1 min read

Við hjá Parketlögnum höfum lagt parket á stiga og þrep. Hægt er að parketleggja þrep á mismunandi vegu sem getur farið eftir parketinu og útlitinu sem fólk kýs. Það algengasta sem við höfum gert á tröppunefinu er að saga parketið í 45°, láta endana þar sem sagað er mætast og loks settur listi yfir samskeytin og einnig sem styrking. Ef fólk vill ekki hafa lista á tröppunefinu er ekki endilega sniðugast að nota aðferðina þar sem er skorið í 45° vegna þess að það veikir parketið og því meiri hætta á skemmdum. 


Við vorum að parketleggja íbúð þar sem eigendur vildu ekki hafa lista á tröppunefinu og þurftum við því að skoða hvað annað væri í boði sem hentaði aðstæðum. Við tókum efnið sem átti að leggja á þrepin og prufuðum mismunandi aðferðir til að sjá hvernig væri hægt að gera samskeytin falleg og sterk. Eftir nokkrar æfingar og samanburð komumst við að niðurstöðu og notuðum þá aðferð í þetta verk. Þetta var vandasamt verkefni því allt þurfti að smella saman á fallegan og snyrtilegan máta og ekkert svigrúm fyrir ónákvæmni. Þetta var skemmtilegt og lærdómsríkt verkefni fyrir okkur og erum við mjög ánægð með útkomuna. 



Hér eru þrep sem eru söguð í 45° og svo settir listar yfir samskeytin.

Stigaþrep með listum



Hér eru þrep þar sem ekki eru settir listar yfir samskeytin

Stigaþrep án lista
Stigaþrep án lista

Comments


bottom of page