top of page
  • Facebook
  • Instagram

Listar og frágangur

Vandaður frágangur skiptir miklu máli fyrir lokaútlit hvers gólfs. Við sjáum um uppsetningu á mismunandi gerðum gólflista, meðal annars viðar-, plast- og málmlistum. Einnig bjóðum við upp á kíttun meðfram veggjum þar sem það hentar, til dæmis við niðurlímt parket.

​

Við leggjum áherslu á nákvæmni og snyrtilegan frágang sem fellur vel að gólfinu og rýminu.

Viðargólflistar við hvíta veggi
Hvítir gólflisytar ís tíl við veggi

Hefðbundnir gólflistar

Gólflistar setja fallegan lokasvip á rýmið og hylja meðal annars bil milli gólfs og veggja. Við setjum upp hefðbundna gólflista úr viði og plasti í mismunandi stærðum og útfærslum. Hvort sem óskað er eftir látlausum listum eða meira áberandi frágangi leggjum við áherslu á nákvæmar samsetningar, snyrtileg horn og vandaða uppsetningu.

Málmlistar og gólfskil

Við sjáum um uppsetningu á mismunandi gerðum málmlista og vandaðan frágang við samskeyti milli gólfefna.

Málmlistar eru bæði snyrtileg og praktísk lausn, til dæmis þar sem parket mætir flísum eða þar sem tvö gólfefni mætast í hurðaropi. Rétt val á lista og nákvæm uppsetning skila fallegum frágangi sem fellur vel að rýminu.

Við leggjum áherslu á nákvæmni og snyrtilegar samsetningar, enda skipta smáatriðin miklu máli fyrir lokaútlit gólfsins.

Járnlisti á milli parkets og flísa
Kíttað meðfram veggjum á niðurlímdu síldarbeina parketi

Kíttun meðfram veggjum

Í sumum tilvikum er hægt að sleppa hefðbundnum gólflistum og ganga frá með kítti meðfram veggjum. Þessi lausn getur gefið rýminu einfalt og stílhreint yfirbragð og hentar meðal annars við ákveðnar gerðir niðurlímdra gólfa. Við metum hvort kíttun henti viðkomandi gólfefni og aðstæðum, enda þarf að taka tillit til hreyfinga í gólfinu.

Hvað kostar uppsetning gólflista og frágangur?

Viðmiðunarverð fyrir frágang er eftirfarandi:

 

Hefðbundnir gólflistar: 1.200–1.500 kr./m² + VSK

Kíttun meðfram veggjum: 1.500 kr./m² + VSK

​​

Ekki er rukkað sérstaklega fyrir lögn á listum eða kítty ef við erum að leggja gólfefnið, þá er listalögnin inn í því verði. 

​

Verðin miðast við vinnu við uppsetningu eða frágang, en ekki kaup á efni. Endanlegt verð fer meðal annars eftir umfangi verksins, gerð lista og aðstæðum á staðnum.

​

Verð fyrir sérstaka málmlista og aðrar frágangslausnir er metið fyrir hvert verkefni.

​

Hvítir listar sem eru hvorki í stíl við gólfið né veggina
Hvítir listar við flæðandi síldarbeinaparket

Fáðu tilboð í lista og frágang

Hvort sem þú ert að endurnýja gólflista, klára nýja parketlögn eða leita að annarri frágangslausn aðstoðum við þig við að finna útfærslu sem hentar verkefninu. Hafðu samband og fáðu frítt verðmat.

FAQs

bottom of page