Síldarbeinaparket og hefðbundið parket í sama verkefni
Updated: May 3
Við hjá Parketlögnum tókum að okkur síldarbeina parkets verkefni en það var heldur óvenjulegt þar sem á einstaka rýmum var hefðbundið parket og því var verkefnið einskonar samspil beggja tegunda. Einnig voru settir parketplankar í kringum síldarbeina parketið. Þetta var mjög skemmtilegt en tímafrekt verkefni þar sem þurfti að huga að mörgum hlutum.
Það þurfti að byrja á því að pússa gólfið og setja síðan primer. Undirlag var síðan límt á gólfið. Síðan voru báðar tegundir parkets límdar á gólfið. Því næst var notaður laser til að búa til beina línu svo hægt væri að saga hringin í kringum síldarbeinaparketið til þess að setja plankana. Þegar því var lokið var loks sett kítty meðfram veggjum í stað lista.
Okkur fannst þetta samspil parkettegunda mjög áhugavert en ekki síður sniðugt. Síldarbeinaparket er ekki ódýr kostur og þetta getur sparað fólki sem langar í svoleiðis parket með því til dæmis að setja hefðbundið parket undir innréttingar og á svæði sem eru ekki mikið til sýnis eins og geymslur og fataherbergi.
Hér er verið að undirbúa gólfið, pússa og setja primer
Hér er búið að líma undirlagið og verið að bíða þar til það þornar, þá er sett þungt ofaná svo það þrýstist niður og aðallega er verið að setja á samskeytin á undirlaginu.
Hér er verið að líma niður parketið og sett þungt ofan á til að þrýsta því niður í límið.
Hér er verið að nota laser til að gera beina línu og saga í kringum síldarbeinaparketið til þess að hægt sé að setja plankana.
Hér er verið að setja planka meðfram síldarbeinaparketinu.
Hér er síðan fullbúið verk, en ekki voru settir gólflistar heldur kítty meðfram veggjum.





Comments