top of page


Parketlögð þrep - falleg og endingargóð lausn fyrir stigann
Við hjá Parketlögnum höfum lagt parket á stiga og þrep. Hægt er að parketleggja þrep á mismunandi vegu sem getur farið eftir parketinu og útlitinu sem fólk kýs. Það algengasta sem við höfum gert á tröppunefinu er að saga parketið í 45°, láta endana þar sem sagað er mætast og loks settur listi yfir samskeytin og einnig sem styrking. Ef fólk vill ekki hafa lista á tröppunefinu er ekki endilega sniðugast að nota aðferðina þar sem er skorið í 45° vegna þess að það veikir parketið

Parketlagnir
May 14


Síldarbeinaparket og hefðbundið parket í sama verkefni
Við hjá Parketlögnum tókum að okkur síldarbeina parkets verkefni en það var heldur óvenjulegt þar sem á einstaka rýmum var hefðbundið parket og því var verkefnið einskonar samspil beggja tegunda. Einnig voru settir parketplankar í kringum síldarbeina parketið. Þetta var mjög skemmtilegt en tímafrekt verkefni þar sem þurfti að huga að mörgum hlutum. Það þurfti að byrja á því að pússa gólfið og setja síðan primer. Undirlag var síðan límt á gólfið. Síðan voru báðar tegundir par

Parketlagnir
Apr 25


Hvaða gólfefni hentar best á Íslandi
Við hjá Parketlögnum fáum oft spurningar um hvaða gólfefni hentar best í ákveðið rými eða í ákveðnar aðstæður. Hér er hægt að skoða þetta aðeins en að velja parket er ekki bara spurning um útlit heldur líka um notkunn endingu og aðstæður. Það getur því verið höfuðverkur að velja rétta tegund af gólfi fyrir heimilið eða fyrirtækið og hafa þarf ýmislegt í huga. Hér fyrir neðan kemur yfirlit if helstu parkettegundir og síðan smá samanburður eftir aðstæðum. Gegnheilt parket Gegnh

Parketlagnir
Apr 23


Hvernig er límt parket lagt, svona gerum við það
Að líma niður parket getur verið tímafrekt en í einhverjum tilfellum er annað ekki í boði. Þetta á sérstaklega við um parket sem á að leggja í mynstri eins og síldarbeinaparket, eða á svæðum sem þarf að þola mikið álag í langan tíma. Það er töluvert meiri vinna við að leggja parket sem þarf að líma heldur en ekki. Þegar líma á niður parket þarf að byrja á því að pússa gólfið niður í steypu svo það sé slétt og jafnt. Passa þarf upp á rakastig og allt verður að vera vel þurrt.

Parketlagnir
Apr 3


Á að líma parket eða leggja það fljótandi? Allt sem þú þarft að vita
Þegar leggja á parket er algengast að hafa það flæðandi eða niðurlímt. Gott er að skoða hvað hentar betur eftir aðstæðum og báðar aðferðir hafa sína kosti og galla. Niðurlímt parket er helst notað í gegnheilu parketi eða þegar gólfið á að vera í ákveðnu mynstri eins og síldarbeinamynstur. Helstu kostir við niðurlímt parket er að það er mjög stöðugt, maður verður ekki var við hreyfingu á gólfinu þegar gengið er á því, gerir manni kleift að leggja í fallegu mynstri. Niðurlímt

Parketlagnir
Apr 1


Minna getur verið meira
Við leggjum oftast parket á heilar íbúðir en það kemur fyrir að við þurfum einungis að leggja á lítil svæði. Það getur oft verið erfiðara og flóknara heldur en íbúð. Ef fólk er til dæmis að laga eitthvað og þarf að láta leggja nýtt parket þá getur nýja efnið þurft að flæða við núliggjandi efni og þá getur tekið tíma að reikna út hvar skal byrja svo allt líti nú vel út. Það fer því oft meiri undirbúningstími í lítil verkefni. Margir halda að ef fermetrarnir eru færri þá er vin

Parketlagnir
Dec 31, 2025


Það þarf ekki alltaf að setja lista
Hér lögðum við parket ... Það þurfti að líma þetta parket niður og það er almennt töluvert tímafrekara en ef því er sleppt. Venjulega þegar sett er kítti meðfram veggjum í stað gólflista er parketið límt niður til að koma í veg fyrir að það gangi aðeins til eins og hefðbundir gólflistar gefa svigrúm fyrir. Í svona verki þarf líka að vanda mjög frágang við veggi og passa að það sé jafn mikið bil allstaðar, frá parketi að vegg, því það verður ekki falið með gólflistum. Það er þ

Parketlagnir
Dec 6, 2025
Bloggið okkar
_________________
bottom of page
