top of page
  • Facebook
  • Instagram

Parketlagðir stigar

Parketlagðir stigar geta sett mikinn svip á heimilið og skapað fallega heild með gólfefninu. Við höfum mikla reynslu af parketlögn í stiga og leggjum áherslu á nákvæm vinnubrögð og vandaðan frágang.

Við bjóðum upp á mismunandi útfærslur, meðal annars stiga með tröppunefjum og stiga þar sem parketið er skorið í 45° horn og samskeytin felld saman án sýnilegra lista. Þannig er hægt að velja frágang sem hentar bæði útliti stigans og óskum viðskiptavinarins.

Parketlagðir stigar með tröppunefi
Parketlagðir stigar með 45° samkeytum

Mismunandi útfærslur á parketlögn í stiga

Stigar með tröppunefjum

Tröppunef eru sett á frambrún þrepanna og mynda snyrtileg skil milli lárétta og lóðrétta flatarins. Þau geta verið hentug lausn eftir gerð parketsins og því útliti sem óskað er eftir.

Stigar með 45° frágangi

Fyrir þá sem vilja stílhreint og samfellt útlit bjóðum við upp á 45° frágang. Þá eru brúnir parketsins skornar í horn og felldar saman þannig að enginn listi sést á samskeytunum. Þetta krefst mikillar nákvæmni en gefur stiganum fallegt og heilsteypt yfirbragð.

Hvaða parket er hægt að leggja í stiga?

Hægt er að klæða stiga með mismunandi gólfefnum, meðal annars viðarparketi, harðparketi og vinyl, eftir eiginleikum efnisins og aðstæðum hverju sinni.Við aðstoðum viðskiptavini við að finna hentuga lausn og velja frágang sem passar við gólfefnið og útlit heimilisins. Hvort sem óskað er eftir hefðbundnum tröppunefjum eða stílhreinum 45° frágangi leggjum við áherslu á vönduð vinnubrögð og fallega lokaútkomu.

Parketlagður stigapallur
Parketlögð lifta

Parketlögn á öðrum flötum

Við tökum einnig að okkur óhefðbundin verkefni þar sem parket er lagt á aðra fleti en hefðbundin gólf. Við höfum meðal annars parketlagt lyftu og höfum gaman af verkefnum sem kalla á útsjónarsemi, nákvæmni og vandaðan frágang. Ertu með hugmynd að óvenjulegri parketlögn?

Hafðu samband og við skoðum möguleikana saman.

Hvað kostar að leggja parket í stiga?

Verð á parketlögn í stiga fer meðal annars eftir gerð stigans, parketinu sem á að leggja og þeirri útfærslu sem valin er.

Viðmiðunarverð: 15.000 - 45.000 kr. + vsk. á hvert þrep.

Endanlegt verð fer eftir umfangi verksins og frágangi. Hafðu samband og fáðu verðmat fyrir þinn stiga.

Parketlagðir stigar

FAQs

bottom of page