top of page
  • Facebook
  • Instagram

Parketlögn

Parketlagnir sér um parketlögn frá upphafi til enda - allt frá undirbúningi gólfs að frágangi lista. Við leggjum bæði viðarparket og plankaparket á heimili, skrifstofur og atvinnuhúsnæði og skilum sléttu, endingargóðu gólfi sem lagt er rétt frá fyrsta borði.

Parketlögn á viðarparketi í stofu
Viðarparket á eldhúsi

Hvað felst í parketlögn hjá okkur?

Við tökum að okkur allt verkið svo þú þurfir ekki að hafa samband við marga aðila:

​

- skoðun og mæling á rými og undirlagi

- ráðgjöf um val á parketi og undirlagi

- lagning á viðarparketi, eik og plankaparketi

- ísetning gólflista og snyrtilegur frágangur

- þrif og yfirferð þegar verkinu er lokið

Viðarparket á opnu rými

Viðarparket, eik og plankaparket

Viðarparket gefur hlýlegt og náttúrulegt yfirbragð og endist í áratugi með réttri umhirðu. Við leggjum gegnheilt parket, spónlagt viðarparket og breið plankaparket, meðal annars úr eik.

​

Ef þú ert ekki búin(n) að velja efni aðstoðum við þig við að finna parket sem hentar notkun og fjárhag.

Niðurlímt viðarparket

Flæðandi lögn eða niðurlímt parket?

Við leggjum parket með tveimur aðferðum. Flæðandi lögn hentar flestum heimilum: parketið er lagt ofan á undirlag án límingar og er fljótlegri og hagkvæmari leið. Niðurlímt parket er límt beint á gólfið, liggur stöðugra og hentar vel í stærri rými, undir gólfhita og þar sem álag er mikið.

 

Við förum yfir hvor aðferðin hentar þínu gólfi og notkun.

​

Undirlag og undirbúningur

Góð parketlögn byrjar á réttu undirlagi. Við yfirförum gólfið, veljum rétt undirlag undir parketið og metum hvort flota þurfi gólfið áður en lagt er. Þannig komum við í veg fyrir brak og ójöfnur eftir á. Sjá einnig þjónustu okkar í flotun gólfa.

Ef parketið er skemmt bjóðum við einnig upp á parketviðgerðir.

​

​

Verð á parketlögn

Verð á parketlögn fer eftir stærð rýmis, gerð parkets og ástandi undirlags. Hér að neðan eru leiðbeinandi einingaverð (án vsk). Við bjóðum frítt verðtilboð eftir skoðun á staðnum, þannig að þú veist kostnaðinn fyrirfram og færð enga óvænta reikninga.

​

  • Flæðandi lögn - viðarparket: 6.000 kr/m²

  • Niðurlímt viðarparket: 10.000 kr/m²

  • Niðurlímt undirlag: 1.500 kr/m²

  • Kíttað meðfram veggjum: 1.500 kr/m²

  • Ísetning gólflista: 1.200-1.500 kr/m

  • Flotun undirlags (ef þarf): 2.000-3.000 kr/m²

 

Síldarbeinamynstur, harðparket og vínylparket eru verðlögð sérstaklega. Verð uppfært 10/2026.

​

Af hverju Parketlagnir.is?

- reyndir fagmenn sem leggja parket daglega
- skýrt verð og frítt tilboð áður en verk hefst
- ábyrgð á unnu verki
- frí ráðgjöf um efnisval

​

Viltu fá parket lagt af fagmönnum? Hafðu samband fyrir frítt verðtilboð og við förum yfir verkið með þér.

​

Viðarparket lagt í björtu herbergi
Parketlögn á viðarparketi í íbúð
Viðarparket með kittý í stað lista

Fáðu tilboð í parketlögn

Ertu að skipuleggja parketlögn eða endurnýjun á gólfum? Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að meta umfang verksins og fá tilboð í framkvæmdina.

Spurt og svarað

bottom of page