top of page
  • Facebook
  • Instagram

Vinyl

Vinylgólf eru slitsterk, auðveld í umhirðu og fáanleg í fjölbreyttum litum og mynstrum. Þau henta vel fyrir heimili og fyrirtæki og eru vinsæll kostur þar sem óskað er eftir fallegu og praktísku gólfefni. Við tökum að okkur faglega vinyllögn og leggjum áherslu á vandaðan undirbúning, nákvæmni og snyrtilegan frágang.

Vinylgólf – fjölbreytt og praktísk lausn

Vinyl er vinsælt gólfefni sem getur hentað mörgum rýmum, svo sem stofum, eldhúsum, forstofum og vinnurýmum.Vinylgólf eru fáanleg í fjölbreyttum útfærslum, meðal annars með áferð sem líkist viði eða steini.

Þau eru almennt auðveld í þrifum og margar gerðir hafa góða mótstöðu gegn raka.

Mikilvægt er þó að velja gólfefni sem hentar notkun rýmisins og fylgja leiðbeiningum framleiðanda, sérstaklega þar sem búast má við miklum raka.

Fljótandi eða límt vinyl?

Vinylgólf er hægt að leggja með mismunandi aðferðum eftir gerð gólfefnisins.

Fljótandi vinyl er yfirleitt lagt með smellukerfi og er þá ekki límt við undirlagið.

Límt vinyl er hins vegar fest beint við undirlagið og krefst þess að yfirborðið sé sérstaklega vel undirbúið.

Við tökum að okkur bæði fljótandi og límda vinyllögn og metum hvaða aðferð hentar hverju verkefni með hliðsjón af gólfefninu og aðstæðum.

Vinyl í síldarbeinamynstri

Vinyl er einnig fáanlegt í síldarbeinamynstri sem gefur gólfinu sérstakt og fágað yfirbragð. Við leggjum meðal annars fljótandi vinyl í síldarbeinamynstri og leggjum áherslu á nákvæmar mælingar og fallegan frágang. Síldarbeinamynstur getur verið skemmtileg leið til að fá sérstakt útlit án þess að velja hefðbundið viðarparket.

Góður undirbúningur skiptir máli

Undirlagið hefur mikil áhrif á endanlega útkomu vinyllagnar. Það þarf að vera nægilega slétt, stöðugt og uppfylla kröfur framleiðanda um meðal annars raka. Áður en vinna hefst metum við ástand gólfsins og hvort þörf sé á lagfæringum eða flotun. Við leggjum áherslu á nákvæma lögn og snyrtilegan frágang við veggi, hurðarop og aðra fleti.

Hvað kostar að leggja vinyl?

Verð fyrir lögn á fljótandi vynil er 4.500–5.000 kr./m² + VSK. Inn í þessu verði er lögn á undirlagi, parketi og listum.

Endanlegt verð fer meðal annars eftir stærð og lögun rýmisins, ástandi undirlagsins og því hvort þörf sé á frekari undirbúningi eða sérstökum frágangi.

Verðið miðast við vinnu við parketlögnina en ekki kaup á gólfefninu.

​

Fáðu tilboð í vinyllögn

Ertu að skipuleggja nýja vinyllögn eða endurnýjun á gólfum? Hafðu samband við okkur og fáðu frítt verðmat á framkvæmdinni.

FAQs

bottom of page