top of page
  • Facebook
  • Instagram

Parketviðgerðir

Rispur, laus borð eða einstök skemmd borð þýða ekki að skipta þurfi um allt gólfið. Oft má gera við parketið á staðnum og halda því mun lengur. Við lögum skemmdir á parketi fljótt og snyrtilega, hvort sem um er að ræða viðarparket eða harðparket.

Parket sem verið er að laga eftir að veggur var fjarlægður
búið að lagfæra gat í gólfi

Hvaða skemmdir lögum við?

Við tökum að okkur algengustu viðgerðir á parketi:


- skiptum um einstök skemmd eða sprungin borð
- festum laus og brakandi borð
- lögum rispur, dældir og bil milli fjala
- gerum við vatnsskemmdir þar sem það er hægt

Mat á staðnum

Við skoðum gólfið og metum hvort viðgerð dugar eða hvort skynsamlegra sé að skipta um á afmörkuðu svæði. Við segjum þér hreinskilnislega hvað borgar sig svo þú eyðir ekki í óþarft verk.

Eftir mynd af lagfæringu �þar sem veggur var fjarlægður
Síldarbeinaparket sem er farið að gliðna í sundur

Að finna rétt borð

Þegar skipta þarf um borð leitumst við við að finna parket sem passar við litinn og áferðina á núverandi gólfi, svo viðgerðin falli sem best inn. Ef þú átt aukaborð frá upphaflegu lögninni nýtum við þau. Ef skipta þarf um stærra svæði sjáum við einnig um parketlögn. Komi í ljós ójafnt undirlag sjáum við um flotun gólfa, og við vegg endurnýjum við gólflista ef þarf.

Verð á parketviðgerðum

Verð á viðgerð ræðst af umfangi skemmda, fjölda borða sem skipta þarf um og aðgengi að efni sem passar við gólfið. Þess vegna er viðgerð alltaf verðlögð eftir skoðun - við gefum frítt verðtilboð áður en verk hefst, þér að kostnaðarlausu og án skuldbindingar.

Til viðmiðunar eru hér einingaverð fyrir tengda vinnu (án vsk):

​​

  • Viðgerð / skipt um borð: tilboð eftir skoðun

  • Niðurlímt viðarparket (ný lögn á svæði): 10.000 kr/m²

  • Flæðandi lögn - viðarparket: 6.000 kr/m²

​

Fastir liðir viðgerða eru ekki á almennri verðskrá þar sem hvert tjón er ólíkt. Verð uppfært 10/2026. Sjá allt verð.

 

Af hverju Parketlagnir.is?​

​

- reyndir fagmenn sem vinna við parket daglega

- heiðarlegt mat - við ráðleggjum viðgerð fram yfir óþarfa endurnýjun

- reynum að finna borð sem passa við núverandi gólf

- frítt verðtilboð áður en verk hefst

​

Er parketið skemmt eða farið að braka? Hafðu samband og fáðu tilboð í viðgerð.

Lagfæring á síldarbeinaparketi, hluti af parketinu tekið af
Búið að lagfæra síldarbeinaparket sem var farið að gliðna í sundur

Sendu okkur mynd af því sem þarf að laga

Sumar parketviðgerðir geta virst flóknar, en oft er hægt að finna góða lausn. Sendu okkur mynd af svæðinu sem þarf að laga ásamt stuttri lýsingu. Við skoðum verkefnið og metum hvernig best sé að fara að því. Hafðu samband og fáðu frítt verðmat.

Spurt og svarað

bottom of page