Á að líma parket eða leggja það fljótandi? Allt sem þú þarft að vita
Updated: Apr 23
Þegar leggja á parket er algengast að hafa það flæðandi eða niðurlímt. Gott er að skoða hvað hentar betur eftir aðstæðum og báðar aðferðir hafa sína kosti og galla.
Niðurlímt parket er helst notað í gegnheilu parketi eða þegar gólfið á að vera í ákveðnu mynstri eins og síldarbeinamynstur.
Helstu kostir við niðurlímt parket er að það er mjög stöðugt, maður verður ekki var við hreyfingu á gólfinu þegar gengið er á því, gerir manni kleift að leggja í fallegu mynstri. Niðurlímt gólf endist mjög lengi og hægt er að pússa það og lakka eftir þörfum án þess að þurfa að skipta.
Helstu gallar við niðurlímt parket er að það tekur töluvert langan tíma að leggja það og erfitt getur verið að lagfæra það því ekki er hægt að fjarlægja bara einstakar fjalir. Einnig getur verið lélegri einangrun og lítil hljóðdempun ef sleppt er undirlagi.
Flæðandi parket er einfaldara og auðveldara að leggj aþar sem það er ekki límt niður heldur bara lagt með smá svigrúmi allan hringinn svo efnið geti flætt og færst til ef þarf.
Helstu kostir við flæðandi gólf er að maður er fljótur að leggja það sem hentar vel þegar verið er að breyta eða maður vill leggja það sjálfur. Það er auðveldara að laga og skipta um einstakar fjalir.
Helstu gallar við flæðandi parket er að það endist ekki eins lengi og það er ekki eins stöðugt, getur færst til eftir mikið álag.







Comments