Hvaða gólfefni hentar best á Íslandi
- Apr 23
- 3 min read
Við hjá Parketlögnum fáum oft spurningar um hvaða gólfefni hentar best í ákveðið rými eða í ákveðnar aðstæður. Hér er hægt að skoða þetta aðeins en að velja parket er ekki bara spurning um útlit heldur líka um notkunn endingu og aðstæður. Það getur því verið höfuðverkur að velja rétta tegund af gólfi fyrir heimilið eða fyrirtækið og hafa þarf ýmislegt í huga. Hér fyrir neðan kemur yfirlit if helstu parkettegundir og síðan smá samanburður eftir aðstæðum.
Gegnheilt parket
Gegnheilt parket er úr ekta við og hefur bæði viðarútlit og áferð. Það hefur klassískt yfirbragð og hlýlegt og þægilegt að ganga á því. Það er mjög endingagott og hægt að slípa upp og lakka til að lengja endinguna. Gegnheilt parket er dýrt en endingagott en erfitt getur reynst að leggja það sjálfur. Helsti ókosturinn við Gegnheilt parket er að það þolir illa raka eða hitabreytingar.
Laminate
Laminate er ekki úr ekta við en hefur viðarútlit, þetta er hentugt fyrir þá sem eru með börn og dýr en einnig fyrir þá sem kjósa ódýrari kost. Laminate hefur ekki eins langan endingartíma og ekta viður þar sem ekki er hægt að pússa það og lakka svo ef það skemmist vegna álags þarf að skipta því út. Hægt er að fá laminate í mismunandi styrktarflokkum fyrir mismunandi aðstæður.
AC3 - er algengast fyrir heimili þar sem flestir ganga um á sokkum eða í inniskóm og er ekkert mikið aukaálag á gólfinu.
AC4 - er hentugt fyrir þá sem eru með dýr eða lítil börn. Einnig getur þetta verið hentugt í forstofur þar sem er farið inn á skónum.
AC5 - er ekki algengt á heimilum og er meira notað á stórum opinberum stöðum þar sem er mikil umferð af gangandi vegfarendum.
Vinyl
Vinyl parket er slitsterkt og þolir mikið álag og raka og er að fá vinyl sem lítur út eins og viður. Það getur komið dæld eða gat í parketið ef eitthvað þungt eða oddhvasst dettur á það.
Lagskipt parket
Lagskipt parket lítur út eins og viður því efsta lagið er úr við og hentar því vel sem valkostur fyrir þá sem sækjast eftir þessu fallega viðarútliti og áferð. Þar sem parketið er í lögum er það ekki eins viðkvæmt og gegnheilt parket fyrir hitabreytingum og raka. Lagskipt parket er endingagott og hægt að pússa og lakka það í nokkur skipti og þannig lengja notkun þess.
Svo hvað skal velja?
Ef það er mikill umgangur á heimilinu, börn dýr og öllu því tengdu er hentugast að vera með laminate eða vinyl parket.
Ef leggja á parket á rökum stöðum eins og eldhús eða baðherbergi er vinyl parket hentugast.
Ef leitast er eftir sem raunverulegasta útliti og áferð af við en með möguleika á einhverjum hitabreytingum er lagskipt parket hentugast
Ef velja á parket sem endist sem lengst og auðvelt er að lappa úpp á er gegnheilt eða lagskipt hentugast.
Ef leggja á parket á rými sem er lítill umgangur eins og svefnherbergi er hægt að velja gegnheilt parket
Ef velja á ódýran kost sem auðvelt er að skipta um eftir nokkur ár er hentugast að nota laminate eða vinyl parket.
Ef leggja á parket á svæði sem er mjög mikill umgangur eins og á opinberum stöðum þar sem fólk gengur mikið um er sterkt laminate hentugast.
Ef þú ert í vafa um val á gólfefni, hafðu samband og við ráðleggjum þér.




Comments