Hvernig er límt parket lagt, svona gerum við það
Updated: Apr 25
Að líma niður parket getur verið tímafrekt en í einhverjum tilfellum er annað ekki í boði. Þetta á sérstaklega við um parket sem á að leggja í mynstri eins og síldarbeinaparket, eða á svæðum sem þarf að þola mikið álag í langan tíma. Það er töluvert meiri vinna við að leggja parket sem þarf að líma heldur en ekki. Þegar líma á niður parket þarf að byrja á því að pússa gólfið niður í steypu svo það sé slétt og jafnt. Passa þarf upp á rakastig og allt verður að vera vel þurrt. Síðan er settur primer á gólfið. Því næst er undirlag límt niður og notaður er lítill handvaltari til þess. Að lokum er parketið límt niður, stundum er búið að sníða parket fyrir svæðið og það lagt niður til að sjá hvort það passi, síðan er það tekið burt og límt niður. Eftir að parket hefur verið lagt þarf að leyfa líminu að þorna vel.















Comments