top of page
  • Facebook
  • Instagram

Hvernig á að viðhalda parket og lengja líftímann

May 16
1 min read

Viðarparket getur enst mjög lengi með réttu viðhaldi, hérna verður farið yfir góðar leiðir til að viðhalda parketi og lengja líftímann. 


Best er að moppa eða sópa daglega til að hreinsa óhreinindi sem geta rispað eða skemmt parketið. Ef þú vilt ryksuga gólfið þarf að passa að ryksugan dragi ekki óhreinindi með sem geta skaðað viðinn, passa þarf að vera með ryksuguna stillta fyrir bert gólf. 


Þegar skúra á gólfið þarf að passa vel upp á að nota efni sem hentar viðnum. Of mikið vatn getur valdið rakaskemmdum og því er ekki mælt með að skúra með vatni. Ef gólfið er lakkað skal sérstaklega passa uppá að nota ekki heimatilbúna blöndu úr sýruefnum eins og edik, sítróna og þess háttar því það getur eytt lakkinu með tímanum. Mælt er með því að nota hreinsiefni á parketið mánaðarlega. 


Gott er að djúphreinsa gólfið á nokkurra mánaða fresti, ef mikið álag er um gólfið eins og börn eða dýr getur verið gott að gera þetta 2-3 á ári. Passa skal að velja djúphreinsiefni sem hentar gólfinu.


Gott er að lakka yfir gólfið á 3-5 ára fresti til að endurnýja útlitið og lengja endingartímann. Síðan er gott að pússa upp gólfið og lakka á áratugafresti. Þetta getur lagað djúpar skrámur, bletti og endurnýjað gólfið. 


Til að verja viðarparket fyrir rispum er gott að setja filt undir húsgögn svo þau skemmi ekki ef þau eru færð til. Einnig getur verið gott að setja teppi á svæði sem er mikið gengið um.  



Comments


bottom of page