top of page
  • Facebook
  • Instagram

Hvernig á að velja rétta gólflista með parketi.

May 1
2 min read

Updated: May 3

Gólflistar eru settir meðfram veggjum og þjóna ýmsum tilgangi eins og til að hylja bilið sem myndast á milli veggja og parkets eftir að parket hefur verið lagt. Einnig vernda þeir vegginn gegn ýmiskonar hnjaski. Það sem margir hugsa kannski minna útí er að þeir skapa einnig flæði milli gólfs og veggjar og þá getur vaknað sú spurning hvort lisarnir skulu vera í sama lit og veggurinn eða gólfið. 


Litaval á gólflistum hefur mikil áhrif á hvernig rýmið kemur fyrir sjónir. Ef litur á listunum flæðir vel milli gólf og veggja virkar rýmið stærra og opnara, en ef það er of mikill munur þá getur rýmið virts minna en það er. Ef listar eru í sama lit og gólfið eða veggirnir þá flæða litirnir. 


Gólflistar í sama lit og veggir


Hvítir veggir og hvítir gólflistar er algengasta og öruggasta val fólks. Þetta skapar einfaldan og nútímalegan stíl. Hinsvegar ef litatónar á milli gólfs og veggja er of lítill getur rýmið misst flæðið


Hérna eru listar í sama lit og veggirnir



Gólflistar í sama lit og gólf


Að hafa gólflista í sama lit og gólfið er einskonar framlenging á gólfinu og skapar áberandi dýpt í rýminu og fallegt flæði milli veggja og gólfs.


Hérna eru gólflistar í sama lit og parketið



Ef listar eru hvorki í sama lit og gólf né veggir þarf maður að passa upp á að þeir samræmist stílnum í rýminu, eru þá í sama lit og hurðakarmar, skraut og þess háttar. Það getur einnig skapað fallegt og heildstætt rými. 



Hér eru listar í sama lit og hurðakarmar






Hér eru ekki hefðbundnir gólflistar heldur eru svartir járnlistar. Skemmtilega öðruvísi.




Til að heildarrýmið komi sem best út þarf því að huga að nokkrum hlutum.

  • Efnið í gólflistunum þarf að passa í rýmið. Ef verið er að leggja gólflista á rök svæði eins og eldhús eða baðherbergi þarf að passa að velja lista sem þola það.

  • Gott er að hafa lista í sama stíl og húsgögn í rýminu. 

  • Velja lit við hæfi, sem passar við veggi, gólf eða hurðakarma. 

  • Ef mikið álag er á listunum þarf að passa að velja lista sem þola högg. 







Comments


bottom of page