top of page
  • Facebook
  • Instagram
Search

Parket og gólfhiti


Í dag eru æ fleiri sem kjósa gólfhita á íbúðir sínar og þetta getur verið þægileg leið til að hafa heimili notaleg og hlý. Eitt af því sem þarf að pæla í er hvernig gólfefni hentar best með gólfhita. Við ætlum að renna yfir helstu parketgerðir og skoða hvað hentar og hvað hentar ekki. Best er að nota gólfefni sem leiðir vel hita en einnig þarf að kynna sér hámarkshitastig sem efnið þolir, flestir segja 27°C. Einnig þarf að athuga hvaða hitastig límið þolir ef líma á gólfefnið niður. 


Laminate

Laminate þolir vel hitabreytingar og getur því hentað fyrir gólf með gólfhita. Passa skal að hafa gott bil umhverfis parketið. Þykkt laminate parket getur verið lengi að hleypa hitanum í gegn og því er mælt með að hafa ekki þykkara en 18mm. Setja skal gólfhitann á hægt og rólega eftir að parket hefur verið lagt, um 5°C á dag.


Vinyl

Hægt er að nota vinyl á gólfhita en það eru nokkrir hlutir sem þarf að skoða. Áður en vinyllinn er lagður þarf að ganga úr skugga um að gólfið sé orðið vel þurrt. Einnig er best að slökkva á gólfhitanum 48 klst áður en gólfefnið er lagt og ekki kveikja á því aftur fyrr en 48 klst eftir að efnið er lagt. 


Gegnheilt

Ekki er hentugt að nota gegnheilt parket á gólfhita vegna þess að það þolir illa hitabreytingar sem verða og getur gliðnað í sundur, hreyfst til eða skemmst. 


Lagskipt

Hentugt er að nota lagskipt parket með gólfhita, það leiðir hita vel og er stabílt gagnvart hitabreytingum þar sem það er í lögum. Einnig þarf að hafa gott bil kringum parketið til að gefa efninu möguleika á að dragast saman og þenjast út. Einnig þarf að kveikja á gólhitanum hægt og rólega eftir að efnið hefur verið lagt. 



 
 
 

Comments


bottom of page